Ef þú hefur fengið Nordjobb
Móttaka
Þegar þú kemur til Álandseyja, tekur fulltrúi Nordjobb á móti þér eða
gefur þér upplýsingar fyrirfram um það hvernig þú kemst á skrifstofu
Nordjobb eða annars fundarstaðar áður en þú ferð af stað. Þú færð lykla
að húnsæði ásamt leiðarvísi þangað og leiðbeiningar um hvernig þú
finnur vinnustaðinn þinn auk þess sem þú getur einnig spurt og fengið
upplýsingar um annað sem þú vilt vita.
Skattframtal
Nordjobbarar á Álandseyjum þurfa ekki að telja
fram á Álandseyjum. Það nægir sem sagt að upplýsa skattayfirvöld heima
um að þú hafir unnið á Norðurlöndum
Fyrir þá sem fá Nordjobb – almennar upplýsingar
Nordjobb
sendir skriflegt vinnutilboð í pósti eða tölvupósti til þess umsækjanda
sem vinnuveitandinn ákveður að ráða. Eftir að hafa fengið vinnutilboð
getur þú hugsað um málið í nokkra daga og svarað tilboðinu annað hvort
játandi eða afþakkað. Viljir þú ekki taka starfinu, geturðu ýmist
hringt eða sent tölvupóst beint á skrifstofu Nordjobb. Við getum því
miður ekki útvegað þér annað starf – um hvert starf eru margir
umsækjendur.
Pantaðu ferðina eftir að fá skriflegt tilboð
Nordjobb sendir
út atvinnutilboð til allra þeirra, sem hafa fengið starf. Ef þú hyggst
taka starfinu, verðurðu að undirrita tilboðið og senda það til
Nordjobb. Eftir það hefur þú lofað að taka við starfinu og húsnæði
verður fundið handa þér. Eftir að þú hefur sagt já við starfinu,
geturðu bókað flug til Nordjobblandsins þíns.
Nordjobbarar bóka og borga ferðir sínar sjálfir
Mundu að bóka
ferðina tímanlega, þannig er möguleiki á lægra verði. Mögulegt er að
ferðast á ýmsa vegu milli Norðurlandanna, með ferju, lest,
rútu, á eigin bíl eða með flugi. Það borgar sig að bera saman verð og
tímasetningar hjá mismunandi fyrirtækjum. Þú getur einnig reynt að hafa
samband við Nordjobblandið þitt og beðið um ráð varðand til að mynda
mismunandi flugfélög sem bjóða upp á ferðir og jafnvel sumartilboð.