Vinnan í Álandseyjar
Nordjobbstaðir
Meira en helming vinnustaðanna er að finna í Maríuhöfn, en einnig eru einhverjir vinnustaðir úti á landi og í skerjagarðinum.
Ráðningar og vinnumenning
Álandseyskir vinnuveitendur byrja snemma að leita að sumarstarfsmönnum. Því er mælt með því að þeir sem hafa áhuga á störfum á Álandseyjum í sumar sæki um í janúar-mars. Skipulag er gott á vinnumarkaðnum á Álandseyjum. Yfirleitt eru unnir 7-8 tímar á dag. Inni í vinnutímanum eu yfirleitt matartími
og nokkrir kaffitímar, en einnig eru til vinnustaðir þar sem matartíminn telst ekki til vinnutíma og því er vinnudagurinn aðeins lengri.
Vinnustaðir
Álandseyjar bjóða upp á störf í þjónustugeiranum, umönnun aldraðra em flest störf tengjast ferðamannaiðnaðinum.
Álandseyjar þurfa á talsverðum fjölda aukafólks í sumarstörf vegna hins gríðarlega fjölda ferðamanna sem heimsækir eyjarnar.
Laun, skattar og gjöld
Laun eru greidd út í lok mánaðar (með einhverjum undantekningum). Launin eru líka örlítið lægri en á hinum Norðurlöndunum.
Á móti kemur að allt er nálægt og að innanbæjarstrætóinn er ókeypis fyrir alla. Meðallaun eru að meðaltali € 1.000 – 1.400 á mánuði. Nordjobbari (ekki þó Finnar) mega fá um það bil 510 € skattfrjálst í laun og af afgangi launanna er greiddur 35% skattur. Önnur gjöld eru greidd af vinnuveitandanum.