Tómstundirnar
Húsnæði
Meira en helming vinnustaðanna er að finna í Maríuhöfn, en einnig eru einhverjir
vinnustaðir úti á landi og í skerjagarðinum.
Ráðningar og vinnumenning
Nordjobb á Álandseyjum getur ekki boðið mörgum gistingu í
stúdentaíbúðum. Flestir búa í venjulegum íbúðum, en einnig fá
margir gistingu í stóru húsi eða leigja herbergi af álenskum
fjölskyldum. Húsnæði er yfirleitt miðsvæðis, en sumir búa utan við bæinn.
Mánaðarleiga fyrir hvern og einn er u.þ.b. 250 Evró í bænum.
Utanbæjar er leigan yfirleitt lægri, um það bil 110-200 Evrur. Ókeypis er í strætó í Maríuhöfn og það má kaupa mánaðarkort í rútur.
Peningar
Matur er ívið dýrari á Álandseyjum en á meginlandi Finnlands. Ef þú býrð í dreifbýlinu borgar sig fyrir þig að kaupa mánaðarkort í rútu eða jafnvel hjól ef vinnustaðurinn er ekki of langt í burtu. Búir þú ekki allt of langt frá vinnustaðnum, er gott að hjóla þar eð hjólreiðastígar á Álandseyjum eru góðir.
Ef þú kemur frá Svíþjóð geturðu auðvitað líka tekið með þér bíl. Bensín er örlítið dýrara en í Svíþjóð.
Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum
er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.
Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n.
Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer á vorið.
Verðdæmi
Til Jomala: mánaðarkort €42, 10 miðar: 18,90 og 50 miðar:
€ 73,60.
Til Sund, Kastelholm: mánaðarkort € 68 , 10 miðar:
30,60 og 50 miðar: € 119
Til Eckerö, Torp: mánaðarkort € 98, 10 miðar: 44,10 og 50 miðar:
€ 171.
Það er ókeypis að ferðast með strætó innanbæjar í Maríuhöfn!
1 flaska af bjór; 1,19 €, 12 bjórflöskur; € 9
1 kíló af hakki; € 6,70-7,80
1 kíló af banönum; € 1,99
1 lítri af mjólk; € 0,92