Upplýsingar um Álandseyjar
Íbúar: 27.153 (31.12.2007)
Bær: Maríuhöfn (Mariehamn), 10.902 (31.12.2007)
Stjórnarform: Sjálfsstjórnarsvæði, sem tilheyrir lýðveldinu Finnlandi.
Álandseyjar eru sjálfsstjórnarsvæði í Finnlandi
Álandseyjar eru staðsettar milli Finnlands og Svíþjóðar. Stærsta eyjan
er fasta Åland, sem er um það bil 70% af öllu landssvæði eyjanna. Eina
bæjarfélag Álandseyja heitir Maríuhöfn (Mariehamn/Maarianhamina) og er
staðsett á fasta Åland. Álandseyjar hafa líkt og Finnland tilheyrt
Svíþjóð og Rússlandi. Árið 1917, þegar rússneska zar-veldið leið undir
lok, óskuðu Álandseyingar eftir að sameinast Svíþjóð að nýju. Um jólin
1917,
lýstu Finnar aftur á móti yfir sjálfstæði sínu og voru ekki reiðubúnir
að láta Álandseyjar frá sér fara.
Sökum alþjóðlegs eðlis Álandseyjamálsins, var málinu skotið
til Sameinuðu þjóðanna og í júní 1921 ákvað ráð Sameinuðu þjóðanna að
Finnland myndi halda yfirráðum yfir Álandseyjum. Finnar skuldbundu sig
til þess að vernda sænska tungu þeirra, menningu og siði. Á sama tíma
gerðu Sameinuðu þjóðirnar samning um að Álandseyjar yrðu herlausar og
að sama
skapi hlutlausar. Álandseyjar eru hluti af Norðurlandaráði og gengu í
Evrópusambandið árið 1995 með Finnlandi.
Menningarhátíðir fyrir alla
Menningarlíf Álandseyja er bæði
líflegt og fjölbreytt. Það felur í sér næstum allar tegundir lista- og
meninngarviðbuðra, frá miðaldatónlist til hugbúnaðarfyrirtækja. Aukinn
fjöldi
listamanna – tónlistarmenn, leikarar og myndlistarmenn og samtök gera
menningarlíf Álandseyja kraftmikið og virkt.
Bókmenntadagar í Maríuhöfn, eru meðal mikilvægustu menningarviðburða og
einnig alþjóðleg orgelhátíð, jazzhátíð og Rock off, sem er
tónlistarhátið aðallega ætluð ungu fólki.
Á Álandseyjum er aðeins töluð sænska
Opinbert tungumál Álandseyja er sænska. Allir þurfa að læra ensku í grunnskóla en finnska er valfag.
Álandseyjar eru eini staðurinn í Finnlandi þar sem aðeins eitt tungumál er talað.
Yfir 6.500 eyjar
Álandseyjar samanstanda af bergi, sem
ísöldin og hafið hafa mótað. Á Álandseyjum vex mikið úrval lauftrjáa,
eins og til dæmis eik, askur, álmur, hlynur og linditré auk úrvals
suðrænna blóma. Á eyjunum vaxa til
dæmis orkídeur. Loftslagið á Álandseyjum er úthafsloftslag, sem hefur í
för með sér mildara loftslag en í Finnlandi.
Text: NIFIN, Nordjobb