välj språk


Vilt þú fá Nordjobbara til starfa í sumar?

Á hverju ári, á tímabilinu maí-september miðlar Nordjobb sumarstörfum til ungmenna á aldrinum 18-28 ára. Árið 2005 voru umsækjendur 8.000 og um 700 manns fengu möguleika á að starfa í öðru norrænu landi. Af reynslu getum við sagt að það er áhugasamt og þenkjandi ungt fólk sem sækist eftir að taka þátt í Nordjobbverkefninu, í þeim tilgangi að læra meira um Norðurlöndin, tungumál þeirra, vinnumarkað og menningu.

Mikilvægt markmið með verkefninu er að auka hreyfanleika á norrænum vinnumarkaði og benda á möguleikann að búa og starfa í nágrannalöndunum. Nordjobb veitir einnig mikilvæga starfsreynslu, sem er mikils virði þegar komið er út á vinnumarkaðinn í leit að framtíðarvinnu. Þar fyrir utan útvegar Nordjobb húsnæði og skipuleggur tómstundadagskrá. Verkefnisstjórar á hverju svæði fyrir sig aðstoða þátttakendur við að koma sér fyrir í nýju landi og skipuleggja tómstundadagskrá. Verkefnisstjórarnir eru einnig til staðar fyrir vinnuveitendur.

Öll atvinnutækifæri koma til greina
Nordjobb útvegar hefðbundin sumarstörf á ýmsum starfssviðum. Umsækjendur hafa margir hverjir hafið háskólanám en sumir eru enn á framhaldsskólastigi. Margir hafa starfsreynslu og leitir þú að manneskju með ákveðna reynslu eða menntun, gerum við okkar besta í að leita að réttum starfskrafti.

Tungumálakunnátta
Eitt af markmiðum Nordjobbs era ð auka kunnáttu og skilning þáttakenda á norrænum tungumálum. Nordjobbarar þurfa að getað talað eitthvert skandínavískt mál; dönsku, norsku eða sænsku. Kunnátta í öðrum norrænum málum; finnsku, færeysku, grænlensku og íslensku er ekki krafist af þátttakendum. Reynsla okkar er sú að lítil kunnátta í tungumálum er ekki vandamál, og að þátttakendur geti sinnt starfi sínu vel til dæmis í umönnunargeiranum.