Ráðningar
Nordjobb mun hafa samband við þig með tillögur um tilvonandi starfsmenn
og það ert þú sem tekur ákvörðun um hverjir eru ráðnir. Þátttakendur
vinna yfirleitt 1-4 mánuði, á tímabilinu maí-september. Þátttakendur
skrifa undir samning beint við vinnuveitandann.
Þeir fá laun samkvæmt samningum eða sambærileg við vinnufélagana og
greiða skatt í því landi sem þeir vinna.
Skattar og gjöld
Nordjobb aðstoðar við að útvega kennitölu og skattkort. Í sumum tilfellum þarf Nordjobbarinn að fá frí í örfáa tíma einhvern
af fyrstu vinnudögunum til að fara til á Hagstofuna og til Ríkisskattstjóra.





