aktuellt

Upplýsingar um Danmörk

Íbúar: 5.447.084 (2007)
Höfuðborg: Kaupmannahöfn 595.933 (2007)
Sjálfsstjórnarsvæði: Grænland og Færeyjar

Danska er dásamleg!
Opinbert tungumál Danmerkur er danska. Danska er austur-norrænt tungumál, og líkist norsku og sænsku. Þrátt fyrir það getur verið erfitt fyrir aðra Norðurlandabúa að skilja dönsku. Danirnir sjálfir skilja oft norsku og finnlandssænsku betur en ríkissænsku.

Frá H.C. Andersen til Roskilde-hátíðarinnar
Danir hafa langa hefð í tónlist og leikhúsi. Á sumrin eru skipulagðar margar tónlistarhátíðir, og af þeim er Roskilde-hátíðin sú þekktasta. Konunglegi danski ballettinn auk Óperunnar og sinfóníuhljómsveitarinnar í Árósum eru orðin fræg á alþjóða vettvangi. Á síðustu áratugum hafa danskar kvikmyndir og leikstjórar eins og Bille August og Lars von Trier náð góðum árangri bæði í heimalandinu og úti í heimi. Eins og hin Norðurlöndin er Danmörk þekkt fyrir arkítektúr og hönnun.
Eitt elsta ríki Evrópu
Undir lok elleftu aldar varð Danmörk konungsríki. Síðan þá hefur landið verið sjálfstætt og er þess vegna eitt af elstu ríkjum Evrópu. Þingið kallast þjóðþingið (folketinget) og á því sitja 179 fulltrúar sem kosnir eru fjórða hvert ár. Tveir af fulltrúunum koma frá Færeyjum og tveir frá Grænlandi. Danmörk er meðlimur í Norðurlandaráði og einnig Sameinuðu þjóðunum, NATO og Evrópusambandinu.

Text: NIFIN, Nordjobb