Ef þú hefur fengið Nordjobb
Láttu Nordjobb í Danmörku vita um komutíma þinn
Þegar þú hefur látið Nordjobb í Danmörku vita um komutíma senda þeir
þér leðbeiningar um hvernig þú kemst í húsnæðið þitt frá
ferjunni/lestinni/fluginu. Fulltrúi Nordjobb mun hafa samband við þig
fyrsta daginn.
Þú færð einnig upplýsingar um tengilið, sem þú getur haft samband við í
GSM-síma.
Hvað á að taka með?
Mundu að taka með hreinlætirsvörur, handklæði, svefnpoka, sængurföt (lak og koddaver),
skó og föt, sumar-, regn- og jafnvel vinnuföt.
Skattaframtal
Nordjobbarar í Danmörku verða að telja fram til skatts í Danmörku. Ef Nordjobbari hefur borgað of mikið í skatt,
fær hann þá upphæð greidda út ef hann telur fram. Dönsk skattayfirvöld senda þér útfyllta skattaskýrslu heim í mars/apríl.
Þú getur sjálf farið yfir hana og breytt á netinu, á www.toldskat.dk. Lestu leiðbeiningarnar og farðu áfram á www.tastselv.toldskat.dk.
Notaðu dönsku kennitöluna þína og lykilorð, sem finna má í
bréfinu frá dönsku skattayfirvöldunum. Þú kemst inn á rafræna
skattaframtalið á login-sida.
Fyrir þá sem fá Nordjobb – almennar upplýsingar
Nordjobb sendir skriflegt vinnutilboð í pósti eða tölvupósti til þess
umsækjanda sem vinnuveitandinn ákveður að ráða. Eftir að hafa fengið
vinnutilboð getur þú hugsað um málið í nokkra daga og svarað tilboðinu
annað hvort játandi eða afþakkað. Viljir þú ekki taka starfinu, geturðu
ýmist hringt eða sent tölvupóst beint á skrifstofu Nordjobb. Við getum
því miður ekki útvegað þér annað starf – um hvert starf eru margir
umsækjendur.
Pantaðu ferðina eftir að fá skriflegt tilboð
Nordjobb sendir
út atvinnutilboð til allra þeirra, sem hafa fengið starf. Ef þú hyggst
taka starfinu, verðurðu að undirrita tilboðið og senda það til
Nordjobb. Eftir það hefur þú lofað að taka við starfinu og húsnæði
verður fundið handa þér. Eftir að þú hefur sagt já við starfinu,
geturðu bókað flug til Nordjobblandsins þíns.
Nordjobbarar bóka og borga ferðir sínar sjálfir
Mundu að bóka
ferðina tímanlega, þannig er möguleiki á lægra verði. Mögulegt er að
ferðast á ýmsa vegu milli Norðurlandanna, með ferju, lest,
rútu, á eigin bíl eða með flugi. Það borgar sig að bera saman verð og
tímasetningar hjá mismunandi fyrirtækjum. Þú getur einnig reynt að hafa
samband við Nordjobblandið þitt og beðið um ráð varðand til að mynda
mismunandi flugfélög sem bjóða upp á ferðir og jafnvel sumartilboð.