Vinnan í Danmörk
Nordjobbsvæði
Danmörk er svo miklu meira en Kaupmannahöfn. Þess vegna höfum við gert okkar besta í að útvega
Nordjobbstörf í borgum eins og Óðinsvéum, Álaborg og Árósum, ásmt stóru ferðamannasvæðunum meðfram norður- og vesturströnd Jótlands.
Vinnustaðir
Nordjobbstörf í Danmörku eru af ýmsum toga. Störfin eru til að mynda á hótelum, veitingastöðum, elliheimilum eða í heimaþjónustu í Kaupmannahöfn en einnig störf í ferðamannabæjum, í verksmiðjum,
verslunum eða hjá garðyrkjumeisturum. Dansir vinnuveitendur taka venjulega ákvörðun varðandi sumarstörf í apríl eða maí.
Laun, skattur og gjöld
Launin í Danmörku eru u.þ.b. 90-110 DKK á tímann. Það þýðir u.þ.b. 13.500-15.500 DKK í mánaðarlaun fyrir fulla vinnu (37 tímar á viku í Danmörku).
Það er mjög mikilvægt að skila inn skattaskyrslu í Danmörku fyrir 1. maí árið eftir að þú hefur unnið sem Nordjobbari, annars getur skatturin hækkað!