aktuellt

Tómstundirnar

Húsnæði
Nordjobbarar fá yfirleitt húsnæði á stúdentagörðum eða í íbúðum í framleigu. Meðalmánaðarleiga fyrir námsmannahúsnæði er yfirleitt kringum 2.000 DKK. Íbúðir kosta um það bil 6.000 DKK á mánuði en þá er þeim deilt með öðrum þátttakanada. Ef þú getur sjálf/ur útvegað þér húsnæði – hafðu þá samband við Nordjobb í Danmörku.

Samgöngur
Danmörk er flöt eins og pönnkukaka – því er fljótlegasti fararmátinn reiðhjól. Taktu með þitt eigið hjól, leigðu eða kauptu það notað í Danmörku. Þannig spararðu peninga fyrir samgöngum. Þú getur einnig nýtt þér verkefnið, sem rekið er í Kaupmannahöfn og kallast „bycyklen” eða bæjarhjólið. Ef þú getur ekki eða vilt ekki hjól, geturðu notað strætó eða innanbæjarlestir.

Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.

Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n. Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer á vorið.

Verðdæmi (18.8.2005)
1 strætómiði, Kaupmannahöfn, 2 svæði; 17 DKK
1 mánaðarkort, strætó, 2 svæði; 300 DKK
1 lítri af mjólk, lífræn; 7 DKK
1 bíómiði; 50-100 DKK
1 kíló af kartöflum; 7 DKK
1 flaska af bjór; 3-5 DKK