aktuellt

Frequently Asked Questions

1. Get ég sótt um Nordjobb þótt ég sé ekki orðin/n 18 ára?

Nei, aldurstakmörkin eru 18-28 ára. Þú verður að vera orðin/n 18 ára þegar þú hefur störf og þú mátt ekki vera orðin/n 29 ára um sumarið.

2. Mig langar að vinna og búa á sama stað og vinur minn/vinkona mín. Er hægt að tryggja að það gangi upp?

Við reynum eftir bestu getu að taka mið af óskum sem þessari en við getum ekki lofað neinu er það varðar. Vinnuveitendurnir ákveða að lokum hverja þeir vilja ráða og þá getur verið að aðeins annar/önnur fái starf eða að þið fáið störf á mismunandi vinnustöðum.

3. Ég er ekki ríkisborgari í norðurlöndunum, get ég samt sótt um vinnu?

Ef þú býrð í norðurlandi og ert ESB-ríkisborgari getur þú sótt um vinnu.

4. Hver borgar ferðir til og frá landinu sem ég á að vinna í?

Það gerir þú sjálf/ur. Það borgar sig að bóka miða eins snemma og auðið er til að tryggja lágt verð.

5. Hvernig get ég aukið líkur mínar á að fá Nordjobb?

A. Krossaðu í mörg lönd og störf B. Merktu við að þú getir unnið lágmark tvo mánuði C. Fylltu út umsóknina eins fljótt og auðið er. D. Gættu þess að umsóknin sé öll útfyllt og tilbúin.

6. Hvenær og hvernig fæ ég að vita hvort ég fái Nordjobb?

Ef vinnuveitandi óskar að ráða þig í vinnu kemur verkefnisstjóri Nordjobb sér í samband við þig (með bréfi, tölvupósti eða símtali) og býður þér vinnuna. Stöku sinnum hefur vinnuveitandinn fyrst samband. Ef þú afþakkar vinnuna getum við því miður ekki boðið þér annað starf heldur er umsókn þín þar með ógild.

Þú getur fengið tilboð þegar í febrúar en ráðið er í flest störf í maí. Ef ekki tekst að finna þér sumarstarf færðu skilaboð um það með tölvupósti um miðjan júní. Því miður getum við ekki látið þig vita fyrr því að við leitum að störfum allt vorið og fram í júní. Meðan við höfum störf á lausu er möguleiki að fá Nordjobb!

7. Er nauðsynlegt að kunna íslensku á Íslandi, finnsku í Finnlandi og færeysku á Færeyjum?

Nei.Þú getur bjargað þér á dönsku, norsku eða sænsku og eins á ensku. Við viljum þó helst að norræn tungumál séu notuð sem mest.

8. Hversu mörg störf eru í boði á ári hverju?

Um það bil 750 störf.

9. Kostar eitthvað að sækja um starf gegnum Nordjobb?

Nei, það er ókeypis.