Tómstundirnar
Móttakan í Finnlandi
Við komuna til Finnlands tekur annaðhvort fulltrúi Nordjobb á móti þér
eða þú færð upplýsingar fyrirfram um það hvernig þú kemst á skrifstofu
Nordjobb eða ákveðinn fundarstað þar sem þér verða gefnir lyklar að
húsnæði, leiðarlýsingu og aðrar mikilvægar upplýsingar.
Skrifstofan í Helsinki er í Tölö-borgarhlutanum, á
Sibeliusgatan 9A, um það bil einum kílómeter norðan við miðborgina.
Símanúmerið er 09-454 20 824.
Skattskýrsla
Nordjobbarar í Finnlandi þurfa ekki að telja
fram í Finnlandi. Nóg er að láta skattyfirvöld í heimalandinu vita að
þú hafir starfað í öðru norrænu landi.
Fyrir þá sem fá Nordjobb – almennar upplýsingar
Nordjobb
sendir skriflegt vinnutilboð í pósti eða tölvupósti til þess umsækjanda
sem vinnuveitandinn ákveður að ráða. Eftir að hafa fengið vinnutilboð
getur þú hugsað um málið í nokkra daga og svarað tilboðinu annað hvort
játandi eða afþakkað. Viljir þú ekki taka starfinu, geturðu ýmist
hringt eða sent tölvupóst beint á skrifstofu Nordjobb. Við getum því
miður ekki útvegað þér annað starf – um hvert starf eru margir
umsækjendur.
Pantaðu ferðina eftir að fá skriflegt tilboð
Nordjobb sendir
út atvinnutilboð til allra þeirra, sem hafa fengið starf. Ef þú hyggst
taka starfinu, verðurðu að undirrita tilboðið og senda það til
Nordjobb. Eftir það hefur þú lofað að taka við starfinu og húsnæði
verður fundið handa þér. Eftir að þú hefur sagt já við starfinu,
geturðu bókað flug til Nordjobblandsins þíns.
Nordjobbarar bóka og borga ferðir sínar sjálfir
Mundu að bóka
ferðina tímanlega, þannig er möguleiki á lægra verði. Mögulegt er að
ferðast á ýmsa vegu milli Norðurlandanna, með ferju, lest,
rútu, á eigin bíl eða með flugi. Það borgar sig að bera saman verð og
tímasetningar hjá mismunandi fyrirtækjum. Þú getur einnig reynt að hafa
samband við Nordjobblandið þitt og beðið um ráð varðand til að mynda
mismunandi flugfélög sem bjóða upp á ferðir og jafnvel sumartilboð.