Vinnan í Finnlandi
Nordjobbstaðir
Helmginurinn af þeim um það bil hundrað störfum, sem í boði eru árlega
í Finnlandi, eru staðsett í Helsinki og nágrenni.
Afgangurinn er í Tampere, Turku, Oulu og í Austurbotni (m.a. Vaasa,
Kokkola, Närpiö, Maxmo, Vöyri, Kristinankaupunki og Pietarsaari).
Ráðningar og vinnumenning
Finnskir vinnuveitendur ráða
yfirleitt sumarstarfsmenn í síðasta lagi í apríl. Þess vegna er
mikilvægt að
umsækjendur, sem áhugasamir eru um að vinna í Finnlandi, sæki eins
snemma um Nordjobb og mögulegt er, gjarnan þegar í janúar-mars.
Þrátt fyrir að vera nákvæmir með að hlutir séu gerðir, eru margir sem
segja vinnumenninguna í Finnlandi vera mjög afslappaða.
Vinnustaðir
Vinnuveitendur koma úr ýmsum starfsgeirum, til
að mynda garðyrkju, umönnun, þjónustu við viðskiptavini, leikskólum, ræstingum, lagerstörfum og á rannskóknarstofum.
Laun, skattar og önnur gjöld
Meðallaun Nordjobbara eru
yfirleitt kringum 1.000 – 1.300 evrur fyrir skatt. Það er aðeins
ódýrara að lifa í Finnlandi en á hinum Norðurlöndunum, sem gerir það að
verkum að launin nægja yfirleitt ágætlega. Nordjobbarar í Finnlandi fá
sérstök skattakjör. Nordjobbarar mega fá allt að 510 evrum í laun á
mánuði án þess að borga skatta og af afganginum er greiddur 35%
skattur.
Þetta þýðir að launin nægja fyrir öllum nauðsynjum og vonandi er
einhver afgangur til að gera eitthvað skemmtilegt.
Hvenær má búast við svari?
Vinnuveitendur velja sumarstarfsmenn í febrúar-maí.