Tómstundirnar
Húsnæði
Venjulega búa þátttakendur í námsmannahúsnæði, en við höfum einnig
verið með húsnæði af almenna markaðnum. Leiga fyrir Nordjobbhúsnæði er
yfirleitt kringum 210-250 evrur á mánuði. Sé fólk með sérstakar óskir,
er óhætt að bera þær undir okkur. Í Helsinki er leigan örlítið hærri en
í minni borgum. Í Tampere og Vasa er yfirleitt hægt að hjóla í
vinnuna en í Helsinki er nauðsynlegt að taka strætisvagn,
neðanjarðarlest eða sporvagna.
Hvað þarf að hafa með?
Þú þarft sjálf/ur að taka með þér
kodda, sæng og lak til Finnlands. Á stúdentagörðum vantar oft einnig
potta og annan eldhúsbúnað.
Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur
tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni
til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á
minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi
skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt
leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum
er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem
hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.
Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum
er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum
niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig
oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í
félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n.
Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer
á vorið.
Verðdæmi
1 strætómiði innan Helsinki, aðra leiðina; 2 €, mánaðarmiði; 59,60 €
1 strætómiði, svæðismiði, aðra leiðina, 3,40 €, mánaðarmiði; 99,60 €
1 bíómiði; virkir dagar; 6,50-8,50 €, helgar; 10 €
1 kíló af kartöflum; 0,70 €
1 kíló af banönum; 2 €
1 brauð; 1-1,5 €
1 flaska af bjór; 1 €