aktuellt

Upplýsingar um Finnland

Íbúar: 5.276.955 (2007)
Höfuðborg: Helsinki 564.521 (2007)
Gjaldmiðill: Evra

Finnar tala finnsku og sænsku – og ensku
Finnland hefur tvö opinber tungumál, finnsku og sænsku, sem er móður mál 6% íbúanna. Finnska er algjörlega ólík hinum norrænu tungumálunum og tilheyrir finnsk-úgrísku málunum eins og eistneska og ungverska.

Hundruð menningarhátíða á hverju sumri
Finnland er land tónlistarfestivala – aðeins á sumrin eru í gangi hundruð hátíða um allt land þar sem bæði innlendir og erlendir listamenn troða upp. Um þessar mundir eru hljómsveitir eins og HIM og The Rasmus þekktir í heiminum. Þekktasta tónskáldið er Jean Sibelius, sem bætti orðspor Finnlands á alþjóðavettvangi. Meðal þekktra rithöfunda í dag er til dæmis Arto Paasilinna, sem hefur notið vinsælda fyrir gálgahúmor sinn fyrir sérstakt skopskyn í verkum sínum. Ekki er hægt að tala um finnska menningu án þess að nefna gufubaðið, sem hefur verið mikilvægt fyrir Finna svo öldum skiptir. Nú til dags er Finnland einnig oft tengt við hönnun og tækni.

Finnland er veðursælast af Norðurlöndunum!
Loftslagið í Finnlandi er afar milt sé tekið tillit til norðlægrar staðsetningar landsins. Meðalhitinn er 6°C hærri en á öðrum stöðum á sömu breiddargráðu – fjöldi hlýrra daga er hæst í Finnlandi í samanburði við hin Norðurlöndin. Stærsti hluti Finnlands liggur innnan norræna barrskógabeltisins og er 70% landsins þakið skóglendi. Dýralífið í Finnlandi samanstendur meðal annars af björnum, úlfum, gaupum, elgum og hreindýrum.

Finnland er sjötta stærsta land Evrópu að flatarmáli
Finnland hefur tilheyrt bæði Svíþjóð og Rússlandi. Landamærin milli Finnlands og Rússlands eru 1.269 km löng. Áður en Finnland varð sjálfstætt, var landið sjálfsstjórnarsvæði innan stórfurstadæmisins Rússlands. Finnland varð sjálfstætt árið 1917 og Mannerheim varð ríkisstjóri. Árið 1920 varð K.J. Ståhlberg fyrsti forseti landsins. Finnland er meðlimur í Sameinuðu þjóðunum og heyrir til Norðurlandaráðs. Árið 1995 gengu Finnar í Evrópusambandið og árið 1999 tók þjóðin upp evruna, eitt Norðurlandanna.

Text: NIFIN, Nordjobb