Ef þú hefur fengið Nordjobb

Móttaka – Færeyjar
Þegar þú kemur til Færeyja kemur fulltrúi Nordjobb annaðhvort og tekur á móti þér eða gefur þér upplýsingar áður um það hvernig þú kemst á skrifstofu Nordjobb eða annan fyrirfram ákveðinn fundarstað. Þú færð svo lykla að húsnæðinu þínu og upplýsingar um hvenrig þú ratar þangað.

Fyrir þá sem fá Nordjobb – almennar upplýsingar
Nordjobb sendir skriflegt vinnutilboð í pósti eða tölvupósti til þess umsækjanda sem vinnuveitandinn ákveður að ráða. Eftir að hafa fengið vinnutilboð getur þú hugsað um málið í nokkra daga og svarað tilboðinu annað hvort játandi eða afþakkað. Viljir þú ekki taka starfinu, geturðu ýmist hringt eða sent tölvupóst beint á skrifstofu Nordjobb. Við getum því miður ekki útvegað þér annað starf – um hvert starf eru margir umsækjendur.

Pantaðu ferðina eftir að fá skriflegt tilboð
Nordjobb sendir út atvinnutilboð til allra þeirra, sem hafa fengið starf. Ef þú hyggst taka starfinu, verðurðu að undirrita tilboðið og senda það til Nordjobb. Eftir það hefur þú lofað að taka við starfinu og húsnæði verður fundið handa þér. Eftir að þú hefur sagt já við starfinu, geturðu bókað flug til Nordjobblandsins þíns.

Nordjobbarar bóka og borga ferðir sínar sjálfir
Mundu að bóka ferðina tímanlega, þannig er möguleiki á lægra verði. Mögulegt er að ferðast á ýmsa vegu milli Norðurlandanna, með ferju, lest, rútu, á eigin bíl eða með flugi. Það borgar sig að bera saman verð og tímasetningar hjá mismunandi fyrirtækjum. Þú getur einnig reynt að hafa samband við Nordjobblandið þitt og beðið um ráð varðand til að mynda mismunandi flugfélög sem bjóða upp á ferðir og jafnvel sumartilboð.