Tómstundirnar
HúsnæðiVið reynum að útvega húsnæði í íbúðum eða húsum. Leigan er 1.000-1.500 DKK á mánuði. Mikill húsnæðisskortur í Þórshöfn, gerir það að verkum að leigan er hærri þar en á öðrum stöðum í Færeyjum.
Peningar
Færeyjar eru ekki ódýrast af Norðurlöndunum, en heldur ekki dýrast. Matvöruverslanir bjóða upp á fjölbreytt úrval – það er mögulegt að velja ódýrar vörur til að spara peninga. Færeyskar matvörur eru þó yfirleitt dýrar – jafnvel fiskur! Fisk er þó mögulegt að kaupa beint frá sjómönnum, sem yfirleitt bjóða lægra verð.
Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.
Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n. Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer á vorið.
Verðdæmi
10-ferða kort í innanbæjarstrætisvagna í Þórshöfn; 80 DKK
Mánaðarkort í innanbæjarstrætisvagna í Þórshöfn; 200 DKK
1 bíómiði; 50 DKK
1 lítri af mjólk; 8 DKK
1 flaska af bjór; 10 DKK
1 brauð; 23 DKK