Ef þú hefur fengið Nordjobb

Láttu okkur vita um komutíma
það er mikilvægt að þú látir okkur vita fyrirfram hvenær þú ætlar að koma til Grænlands, svo að við getum gert ráð fyrir að taka á móti þér eða hitta þig þar sem þú kemur til með að vinna.

Móttaka
Nordjobb gefur þér upplýsingar um hvernig tekið verður á móti þér þegar þú kemur til Grænlands. Þú ferðast sjálf/ur til þess bæjar þar sem þú munt vinna, en þar tekur annað hvort fulltrúi Nordjobb eða vinnuveitandinn á móti þér.

Skattframtal
Nordjobbarar á Grænlandi þurfa ekki að skila inn skattframtali.

Fyrir þá sem fá Nordjobb – almennar upplýsingar
Nordjobb sendir skriflegt vinnutilboð í pósti eða tölvupósti til þess umsækjanda sem vinnuveitandinn ákveður að ráða. Eftir að hafa fengið vinnutilboð getur þú hugsað um málið í nokkra daga og svarað tilboðinu annað hvort játandi eða afþakkað. Viljir þú ekki taka starfinu, geturðu ýmist hringt eða sent tölvupóst beint á skrifstofu Nordjobb. Við getum því miður ekki útvegað þér annað starf – um hvert starf eru margir umsækjendur.

Pantaðu ferðina eftir að fá skriflegt tilboð
Nordjobb sendir út atvinnutilboð til allra þeirra, sem hafa fengið starf. Ef þú hyggst taka starfinu, verðurðu að undirrita tilboðið og senda það til Nordjobb. Eftir það hefur þú lofað að taka við starfinu og húsnæði verður fundið handa þér. Eftir að þú hefur sagt já við starfinu, geturðu bókað flug til Nordjobblandsins þíns.

Nordjobbarar bóka og borga ferðir sínar sjálfir
Mundu að bóka ferðina tímanlega, þannig er möguleiki á lægra verði. Mögulegt er að ferðast á ýmsa vegu milli Norðurlandanna, með ferju, lest, rútu, á eigin bíl eða með flugi. Það borgar sig að bera saman verð og tímasetningar hjá mismunandi fyrirtækjum. Þú getur einnig reynt að hafa samband við Nordjobblandið þitt og beðið um ráð varðand til að mynda mismunandi flugfélög sem bjóða upp á ferðir og jafnvel sumartilboð.