Vinnan á Grænlandi

Nordjobbstaðir
Á Grænlandi bjóðum við fyrst og fremst upp á sumarstörf í Nuuk (höfuðstaðnum með 14.715 íbúa, 2004)

Vinnustaðir
Algengustu störfin eru við hreingerningar, hótel-og veitingastörf og barnapössun.

Laun, skattar og gjöld
Launin eru u.þ.b. 7.000 DKK á mánuði og 50% er skattfrjálst, u.þ.b. 40% skattur á afgangin. Hafðu samband við skattstofuna á staðnum við komu og biddu um skattkort sem veitir þér takmarkaða skattbyrði. Nordjobbarar á Grænlandi borga skatt til þess bæjarfélags þar sem þeir starfa. Nordjobbarar hafa takmarkaða skattbyrði.

Til þess að fá skattkort þarftu að veita skattstofunni eftirfarandi upplýsingar: nafn, heimilisfang, komudag til Grænlands, starfstímabil og fæðingardag og –ár (mögulega skilríki ef þú kemur frá Danmörku). Danskir Nordjobbarar þurfa líka að taka með afrit af skattkorti sínu frá Danmörku. Launaseðla má nota sem kvittun fyrir því að þú hafir greitt skatt í Grænlandi er heim er komið. Þetta gildir fyrir alla Nordjobbara þegar þeir ferðast til heimalandsins.