Tómstundirnar
Ef þú vilt vinna á Grænlandi skaltu búa þig undir að vera sjálfstæðari
en þú þyrftir að vera annars staðar á Norðurlöndunum. Miklar fjarlægðir
gera það að verkum
að erfitt er að safna Nordjobburum saman um hverja helgi. Við gerum þó
okkar besta til að útvega sem flest störf á sama stað.
Húsnæði
Nordjobbarar búa á stúdentagörðum eða í íbúðum sem
vinnuveitendur útvega. Það er bara mögulegt að dveljast á
stúdentagörðum til júlíloka því skólarnir byrja aftur í snemma í ágúst.
Þú skrifar undir leigusamning við fulltrúa viðkomandi skóla. Þú hefur
aðgang að baðherbergi og eldhúsi í húsnæðinu. Mánaðarleigan á
stúdentagörðum er u.þ.b. 850 DKK.
Gleymdu ekki að láta okkur vita hvenær þú kemur með góðum fyrirvara svo
við getum gengið frá að útvega þér húsnæði.
Peningar
Yfirleitt fær ófaglært starfsfólk útborgað á hálfsmánaðar fresti. Athugaðu að þú færð laun fyrst
eftir tveggja til þriggja vikna vinnu. Vertu viðbúinn að þú þarft samt að borga leigu fyrirfram og kaupa mat frá komudegi.
Verðdæmi
6 flöskur af bjór; 16-17 DKK
1 kíló af banönum; 25 DKK
1 bíómiði; 50-70 DKK
1 hamborgari; 40-50 DKK
1 kíló af hakki; 55 DKK
1 kíló af kartöflum; 10 DKK