Ef þú hefur fengið Nordjobb
Láttu vita um komutíma
Hafðu í huga að það er mikilvægt að þú sért mætt/ur þann á fyrsta vinnudegi, sem gefinn er upp í vinnutilboðinu.
Ef það gengur ekki upp af einhverjum ástæðum, láttu Nordjobb á Íslandi þá vita hvaða dag þú ertu væntanleg/ur.
Móttaka
Þú tekur flugrútuna, sem kostar 1.700 ISK til Reykjavíkur (17.04.09).
Leiðarlýsingar að húsnæðinu koma í upplýsingapakkanum, sem þú færð
sendan með tölvupósti. Næsta virka dag eftir komu, mætir þú á
Nordjobbskrifstofuna
og þú færð far í vinnuna. Þeir sem starfa úti á landi hitta fulltrúa
frá Nordjobb á rútustöðinni og halda svo áfram ferð sinni.
Hvað þarf að taka með?
Taktu með svefnpoka fyrir ferðir,
sundföt, regngalla, hlýjan klæðnað og sumarföt.
Þú þarft mögulega að hafa með þér vinnuföt eða sængurföt (lak og
koddaver) en þú færð nánari upplýsingar um það áður en þú ferð af stað.
Skattframtal
Nordjobbarar á Íslandi þurfa að leggja inn skattframtal.
Fyllið út skattframtalið og sendið til Ríkisskattstjóri, Laugavegur 166, IS-105 Reykjavík, Island.
Vanti þig eyðublaðið, hringdu þá til Nordjobb á Íslandi, s. +354 5510165 eða sendu tölvupóst á island@nordjobb.net
Það er mikilvægt að skila inn skattframtalinu, ella getur það
gerst að þú þurfir að borga skatt fyrir laun sem þú ekki fékkst á
árinu. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.rsk.is á íslensku og ensku.
Mundu að gefa skattayfirvöldum í heimalandinu einnig upplýsingar um tekjur af Nordjobb, ef þörf er á.