Foto:Alma Sigurðardóttir

Vinnan á Íslandi

Störf
Nordjobbarar í þéttbýli starfa yfirleitt í þjónustugeiranum, við umönnun, garðyrkju eða ræstingar. Á landsbyggðinni er aðallega um að ræða landbúnaðarstörf og vinnu við garðyrkju.

Nordjobbsvæði
Flest störfin eru í Reykjavík og nágrenni, meðfram suðvesturströnd landsins og á Akureyri, stærsta bænum í norðurhluta landsins. Hluti starfanna er við landbúnað og geta þessi störf verið erfið líkamlega og þeim fylgt dálítil einangrun þar eð sveitabæirnir eru oft fjarri þéttbýli. Það er mikilvægt að hafa það í huga áður en tekin er ákvörðun um að taka við slíku starfi.

Ráðningar og vinnumenning
Vinnuveitendur á Íslandi skipuleggja sumarið yfirleitt fremur seint. Þetta þýðir að Nordjobbstörfin koma ekki inn fyrr en í apríl og maí. Íslendingar vinna mikið og orðið „vinna” er eitt af þeim fyrstu sem börn læra. Á vinnustaðnum er yfirleitt afar afslappað andrúmsloft.

Laun, skattar og önnur gjöld
Launin er yfirleitt milli 125.000 og 200.000 ISK á mánuði (01.02.08). Í landbúnaði eru útborguð laun 74.500 ISK á mánuði en þá er fæði og húsnæði innifalið. Skattur er ekki greiddur af tekjum undir 100.000 ISK á mánuði en svo er greiddur 35;72% skattur af þeirri upphæð sem er hærri. Það er mikilvægt að skila inn skattframtali til skattayfirvalda á Íslandi fyrir árslok. Þú færð hjálp frá Nordjobb á Íslandi við skilin.

Hvenær má búast við svari?
Vinnuveitendur velja yfirleitt sumarstarfsmenn í apríl-maí.