Foto:Alma Sigurðardóttir

Tómstundirnar

Húsnæði
Á Íslandi hefur Nordjobb takmarkaðan aðgang að húsnæði á stúdentagörðum þannig að flestir þátttakendur búa hjá fjölskyldu eða deila íbúð með öðru fólki. Flestallir búa nokkuð miðsvæðis í Reykjavík. Leigan er yfirleitt á bilinu 30.000 - 40.000 ISK. Þeir sem starfa á bóndabýlum eða hótelum á landsbyggðinni búa á vinnustaðnum. Til að fara ferða sinna innan Reykjavíkursvæðisins er notaður strætisvagn þar eð lesti og sporvagna er ekki að finna á Íslandi.

Peningar
Matur er fremur dýr á Íslandi og grænmeti og ávextir eru til að mynda talsvert dýrari en í Skandinavíu. Á Íslandi er borðað meira af fiski og lambakjöti en á nokkru hinna Norðurlandanna. Fyrir þá sem ekki taka með sér næga peninga má gera ráð fyrir að borða pasta og tómatssósu fyrsta mánuðinn.

Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.

Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n. Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer á vorið.

Verðdæmi (01.02.08)
1 mánaðarkort í strætó innanbæjar; 5.600 ISK
2ja vikna kort í strætó innanbæjar; 3.500 ISK
1 strætómiði innanbæjar; 280 ISK (ekki gefið til baka)
1 kíló af hakki; ca 900 ISK
1 kíló af banönum; ca 180 ISK
1 flaska af bjór; 105-790 ISK