Foto:Alma Sigurðardóttir

Upplýsingar um Ísland

Íbúar: 307.672 (2007)
Höfuðborg: Reykjavík, 116.642 (2007)

Ísland er eyríki í miðju Atlantshafi
Helstu nágrannar landsins austurhluti Grænlands í norðri (290 km), Skotland í suðri (800 km) og Noregi í austri (970 km). Ísland er lýðveldi, eftir að hafa lýst yfir sjálfstæði 17. júní 1944 og valið fyrsta forsetann. Þingið kallast Alþingi og samanstendur það af 63 fulltrúum sem kosnir eru fjórða hvert ár. Ísland er meðlimur í Norðurlandaráði. Að auki tilheyrir landið SÞ, evrópska efnahagssvæðinu EES og NATÓ. Ísland tilheyrir ekki Evrópusambandinu.

Mikilvægasta atvinnugrein Íslendinga er fiskiðnaður, sem sér landinu fyrir stærstum hluta tekna sinna. Engu að síður starfar aðeins um 10% landsmanna í fiski og fiskeldi, en 60% í þjónustu. Ferðamennskan er næststærsti atvinnuvegurinn en margir Íslendingar hafa einnig sérhæft sig á sviði tölvufræði og útflutningur af tölvuforritum eykst með hverju árinu.

Íslendingar tala íslensku en líka dönsku og ensku
Íslensk tunga tilheyrir indóevrópsku málafjölskyldunni og er skylt sænsku en málið hefur varðveitt margar gamlar beygingarmyndir sem hin norrænu tungumálin hafa ekki gert. Frá árinu 1999 er enska fyrsta tungumál í grunnskólum en annað tungumál er yfirleitt danska.

Eldfjöll og goshverir
Eyjan Ísland varð til við eldgos á flekaskilum á síðustu 14-16 milljónum ára. Eldfjöllin á skilunum milli flekanna eru enn virk. Íslensk jörð er ein sú virkasta í heiminum er kemur að jarðhræringum. Síðan Ísland byggðist er vitað um hér um bil 150 eldhræringar og má gera ráð fyrir slíku fimmta hvert ár.

Landið er ríkt af heitu vatni og landsmenn hafa lært að nýta sér það. Um það bil 85% húsa eru hituð upp með heita vatninu, sem einnig er nýtt til að hita upp gróðurhús og sundlaugar. Alls er að finna um 800 heitar laugar vítt og breitt um landið. Til að vega upp á móti eldgosum og jarðhræringum má finna stóra og mikla jökla á Íslandi.

Í hafinu kringum landið lifa samtals sautján mismunandi hvalategundir og margar selategundir. Íslenski hesturinn er einstakur vegna töltsins, sem er sérstakur gangur hans. Hestarnir falla inn í nátturu og landslag og eru enn þá nýttir til að reka fé og í ferðamennsku.

Björk er frægasti Íslendingurinn
Menningarlíf á Íslandi er kröftugt. Leikhús, kvikmyndir, bókasöfn og list eru afar vinsæl. Margir íslenskir rithöfundar hafa einnig orðið þekktir annars staðar í heiminum. Nóbelsverðlaunahafinn Halldór Kiljan Laxness (1902-1998) var frægasti rithöfundur síðustu aldar. Aðrir þekktir rithöfundar eru Vigdís Grímsdóttir og Einar Kárason. Sönkonan Björk er frægasti Íslendingurinn, fyrir afrek sín á tónlistarsviðinu.

Text: NIFIN, Nordjobb