Ef þú hefur fengið Nordjobb
Móttaka
Ef þú færð Nordjobb í Osló tekur fulltrúi Nordjobb á móti þér við komu. Ef þú færð vinnu
annars staðar á landinu færðu allar upplýsingar um komudag auk leiðarvísis til húsnæðis og vinnu með Nordjobb tilboðinu.
Skattframtal
Nordjobbarar í Noregi verða að telja fram í Noregi.
Ef þú hefur ekki fengið skattframtal í pósti fyrir byrjun apríl árið eftir, skaltu hafa samband við skattayfirvöld í
því bæjarfélagi sem þú varst að vinna. Þú þarft að senda ramtalið inn fyrir 30. apríl árið eftir að þú varst nordjobbari.
Upplýsinga er að finna á heimasiðu www.skatteetaten.no
Nordjobb í Osló getur einnig hjálpað til. Hringdu eða sendu tölvupóst (sjá Hafðu samband). Athugaðu að skattayfirvöld heima þurfa líka að fá þessar upplýsingar. Þú verður þó ekki tvísköttuð/skattaður.
Fyrir þá sem fá Nordjobb – almennar upplýsingar
Nordjobb sendir skriflegt vinnutilboð í pósti eða tölvupósti til þess umsækjanda sem vinnuveitandinn ákveður að ráða. Eftir að hafa fengið vinnutilboð getur þú hugsað um málið í nokkra daga og svarað tilboðinu annað hvort játandi eða afþakkað. Viljir þú ekki taka starfinu, geturðu ýmist hringt eða sent tölvupóst beint á skrifstofu Nordjobb. Við getum því miður ekki útvegað þér annað starf – um hvert starf eru margir umsækjendur.
Pantaðu ferðina eftir að fá skriflegt tilboð
Nordjobb sendir út atvinnutilboð til allra þeirra, sem hafa fengið starf. Ef þú hyggst taka starfinu, verðurðu að undirrita tilboðið og senda það til Nordjobb. Eftir það hefur þú lofað að taka við starfinu og húsnæði verður fundið handa þér. Eftir að þú hefur sagt já við starfinu, geturðu bókað flug til Nordjobblandsins þíns.
Nordjobbarar bóka og borga ferðir sínar sjálfir
Mundu að bóka ferðina tímanlega, þannig er möguleiki á lægra verði. Mögulegt er að ferðast á ýmsa vegu milli Norðurlandanna, með ferju, lest,
rútu, á eigin bíl eða með flugi. Það borgar sig að bera saman verð og tímasetningar hjá mismunandi fyrirtækjum. Þú getur einnig reynt að hafa
samband við Nordjobblandið þitt og beðið um ráð varðand til að mynda mismunandi flugfélög sem bjóða upp á ferðir og jafnvel sumartilboð.
Íbúðir í Osló
Nordjobb í Noregi er með samning við nemendafélagið í Osló, SiO – þar sem við fáum leigð góð og ódýr herbergi á heimavist í Sogni, Bjerke eða Kringsjå. Einhver munur er á verði, aðstöðu og og útbúnaði herbergjanna en í leigunni er innifalið rafmagn og hiti, og aðgangur að æfingasal, gufubaði, þvottahúsi og útisvæði.
Mandag, tirsdag, onsdag og fredag 08.00-16.00
Torsdager, Blindern 08.00-16.00
Torsdager, Bjølsen og Kringsjå 10.00-18.00
Resepsjonenes adresser:
Blindern, første etasje i administrasjonsbygningen ved Universitetet i Oslo, Problemveien 7
Bjølsen Studentby, Moldegata 23
Kringsjå Studentby, Sognsveien 218
Eftir kl 12:00 myndast oft röð, vertu tímanlega. Hætt er að hleypa inn eftir kl 15:30. www.sio.no