Vinnan í Noregi
Nordjobb staðir
Nordjobb er helst að finna í Osló og nágrenni en einnig á hótelum á vesturstöndinni og í Norðurkollu.
Vinnustaðir
Flest störf er að finna í þjónustu- og ferðamannageiranum, til dæmis á
veitingastöðum, eldhúsum eða við hreingerningar. Þú getur einnig fengið
starf sem vaktmaður eða í afgreiðslu á safni eða vaktmaður í
greiðsluhliði einhvers staðar í Osló og Norðurkollu.
Möguleikarnir eru margvíslegir, meðal annars að vinna á hóteli í
einhverjum firðinum eða annað í svipuðum dúr.
Ráðningar
Ráðningar hefjast í mars-apríl,
svo að möguleikar þínir á að fá sumarvinnu gegnum Nordjobb eru meiri ef þú sækir um í tæka tíð.
Laun, skattar og önnur gjöld
Í Noregi eru launin tiltölulega
há, en það er einnig frekar dýrt að búa þar. Meðallaun eru á bilinu
15.000-20.000 NOK á mánuði fyrir skatt. Skattbyrðin fer eftir launum.
Að meðaltali greiða Nordjobbarar 25-36% skatt. Það er mikilvægt að þú
útvegir þér skattkort í tæka tíð, því annars tekur vinnuveitandinn 50%
í skatt.