Tómstundirnar
Húsnæði
Yfirleitt búa Nordjobbarar í námsmannahúsnæði. Það þýðir að þeir hafa
eigið herbergi en deila eldhúsi og baðherbergi/klósetti með öðrum.
Leigan er
kringum 3.000 NOK á mánuði og hana þarf að greiða fyrirfram. Mundu því
að hafa með þér næga peninga!
Peningar
Það er fremur dýrt að lifa í Noregi. Þú verður að
hafa með þér talsverða peninga áður en þú kemur – mundu að þú þarft að
lifa af fyrsta mánuðinn! Til að eiga næga peninga fram
að fyrstu launagreiðslu þarf að hafa með sér minnst 9000 NOK til að
geta borgað leiguna, keypt mánaðarkort í samgöngur og mat.
Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur
tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni
til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á
minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi
skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt
leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum
er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem
hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.
Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum
er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum
niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig
oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í
félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n.
Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer
á vorið.
Verðdæmi (2008.01.22)
- Lokaltransport Oslo: Enkeltbillett kjøpt ombord 30 NOK/kjøpt på forhånd 22 NOK. 1 reise med fri overgang i 1 time.
- Månedskort i Oslo: Fleksibelt (upersonlig): under 20 år 360 NOK, over 20 år 720 NOK. A-kort (personlig): under 20 år 335 NOK, over 20 år 670 NOK
- 1 hamburger: Big Mac: 45 NOK, Big Mac Meny: spise inne 65 NOK/ta med 60 NOK
- 1 flaske/boks øl, i butikken: 12-30 NOK/på pub etc. 50-60 NOK
- 1 kg kødfars: 60-100 NOK
- 1 kg bananer: 15 NOK
- 1 liter mælk: 11 NOK
- 1 kg kartofler: 9 NOK
- 1 brød: 5-25 NOK
- 1 biografbillet: 80-90 NOK