Foto: Alma Sigurdardóttir

Hvað er Nordjobb?

Nordjobb vinnur að því að auka hreyfanleika milli Norðurlandanna og auka kunnáttu í tungumálum og menningu landanna.

Nordjobb:
  • Miðlar sumarstörfum á Norðurlöndunum og á sjálfsstjórnarsvæðunum.
  • Miðlar húsnæði.
  • Skipuleggur spennandi og áhugaverða tómstundadagskrá.

Hverjir geta sótt um Nordjobb?
  • Norrænir ríkisborgarar eða ríkisborgarar í Evrópusambandinu sem eru búsettir á Norðurlöndunum
  • sem eru á aldrinum 18 til 28 ára (2008: fæddir á bilinu 1.1.1980-1.7.1990)
  • sem geta bjargað sér á sænsku, norsku eða dönsku.
Starfsreynsla eða menntun er ekki skilyrði. Nordjobb miðlar að mestu leyti dæmigerðum sumarstörfum eins og garðyrkju- og landbúnaðarstörfum, ræstingar, hótel- og gistiheimilisvinnu, þjónustu, verksmiðju- og lagerstörfum ásamt umönnunarstörfum. Þú getur ekki fengið starf í þínu eigin landi –nema Finnar, sem geta fengið Nordjobb á Álandseyjum og öfugt. Þú færð alltaf laun samkvæmt samningum og borgar skatta í landinu þar sem þú starfar. Nordjobb útvegar bæði húsnæði og starf en umsækjendur borga ferðir og leigu sjálfir. Það eru vinnuveitendurnir sem taka ákvarðanir varðandi ráðningar.

Nordjobb miðlar húsnæði
Nordjobb tekur að sér að finna húsnæði fyrir nordjobbara, en samningurinn stendur á þeim og nordjobbarinn greiðir leigu beint til leigusalans. Leigan er alltaf borguð fyrirfram. Húsnæðið er yfirleitt námsmannahúsnæði eða á stúdentagörðum þar sem leigan er í lægri kantinum. Reynt er að passa upp á að húsnæðið sé eins nálægt vinnustaðnum og mögulegt er.

Ekki aðeins vinna - einnig skemmtun!
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá á öllum stærstu Nordjobbsvæðunum, einu sinni til tvisvar á viku. Á kvöldin er til dæmis spilaður fótbolti eða farið í gufubað. Í flestum Nordjobb bæjunum er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið Nordjobburum að kostnaðarlausu. Nordjobbarar segja oftar en ekki að sumarið hafi verið ógleymanlegt!

Hvernig er Nordjobb fjármagnað?
Nordjobb er fjármagnað að mestu leyti af Norrænu ráðherranefndinni, Norrænu félögunum, vinnuveitendum og ráðuneytum eða vinnumálastofnunum. Á Íslandi hefur Félags- og tryggingamálaráðuneytið styrkt Nordjobb verkefnið. Nordjobb hefur verið starfrækt frá árinu 1985 og hefur útvegað um það bil 15.000 ungmennum störf. Nordjobb er samhæft frá skrifstofu verkefnisins í Malmö, en svo er verkefninu stýrt frá skrifstofu í hverju landi.