Upplýsingar um Noregur
Íbúar: 4.681.134 (2007)
Höfuðborg: Osló, 548.617 (2007)
Í norðvesturhluta Evrópu
Noregur er konungsríki, sem eignaðist eigin stjórnarskrá 17. maí 1814,
og er hún enn í gildi. Noregur öðlaðist sjálfstæði árið 1905 þegar
sambandið við Svíþjóð var rofið. Þingið kallast Stortinget og á það eru
valdir 165 fulltrúar fjórða hvert ár.
Noregur er meðlimur í Norðurlandaráði. Að auki er landið eitt Sameinuðu
þjóðanna, tilheyrir Evrópska efnahagssvæðinu EES og NATÓ. Norðmenn
sögðu nei við inngöngu í Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1972 og niðurstaðan 1994 var sú sama svo að landið er ekki meðlimur.
Mikilvægi ferðamannaiðnaðarins eykst sífellt. Náttúra Noregs
er þannig að aðeins 3% landsins er ræktanlegt en hafið en mikið er af
fiski í hafinu.
Fiskur er mikilvægasta útflutningsvara Noregs á eftir olíu og gasi.
Landbúnaður er aðeins lítill hluti af þjóðarframleiðslu.
Norskt landslag einkennist af fjöllum og fjörðum
Há fjöll og
firðir sem teygja sig langt inn í landið eru dæmigerðir fyrir norska
náttúru. Þrátt fyrir norðlæga legu Noregs einkennist loftslagið af
mildum vetrum þökk sé Golfstraumnum. Á sama tíma er munurinn á
loftslagi í Finnmörk í norðri, Vestur-Noregi
og austu- og suðurhlutum landsins mikill. Í vestri fer hitastig sjaldan
niður fyrir frostmark en í Finmörk fer hitastig niður í -50°C.
Bókmál og nýnorska
Samar tala eigið tungumál og eiga eigin
menningu en að tungumáli Sama frátöldu eru tvö opinber tungumál í
Noregi. Bókmálið byggir á munnlegum arfi frá danska tímanum en nýnorsk
er byggð á mállýskum
frá Vestur- og Suður-Noregi. Norsk tunga er skyld bæði dönsku og sænsku
og Svíar og Danir skilja yfirleitt norsku án nokkurra vandræða.
Víkingar og ullarpeysur
Erlendis er norsk list og menning oft
tengd trésmíðalist frá víkingatímanum, skreyttum stafkirkjum,
þjóðbúningum og hinni sérstöku þjóðtónlistarhefð.
Heimsþekkta leikritaskáldið Henrik Ibsen (1828-1906), rithöfundurinn
Björnstjerne Björnsson, tónskáldið Edvard Grieg (1843-1907), málarinn
Edvard Munck
(1863-1944) og nóbelsverðlaunahafinn og rithöfundurinn Knut Hamsun
(1859-1952) má alla nefna í tengslum við norskt menningarlíf.
Noregur hefur á undanförnum árum borið af sér marga listamenn og
hljómsveitir, sem náð hafa vinsældum á alþjóðavettvangi eins og
Röyksopp og Ane Brun.
Þekktasta nútímatónskáldið er Arne Nordheim. Fjöldi ungra
sólólistamanna á sviði klassískrar tónlistar og jazz eru einnig þekktir
víða um heim, til dæmis Leif Ove Andsnes, Truls Mørk og Jan Garbarek.
Text: NIFIN, Nordjobb