Vinnan í Svíþjóð
Nordjobb staðir
Stokkhólmur, og Gautaborg eru tvær stærstu borgirnar í Svíþjóð og þar dveljast einnig flestir nordjobbarar.
Ráðning
Sæktu snemma um Nordjobb, jafnvel strax í janúar. Sænskir
vinnuveitendur geta valið úr mörgum umsóknum og vilja helst ráða
sumarstarfsmenn þegar í mars, þótt tímabil ráðninga sem miðað er við sé
mars-maí.
Í Svíþjóð eru flest störfin við umönnun og þjónustu en einnig garðyrkju
og í verksmiðjum. Einnig eru störf við símasölu.
Laun, skattar og gjöld
Algeng mánaðarlaun Nordjobbara eru
milli 15.000-19.000 SEK, fyrir skatt. Skatturinn er 25% og skiptir þá
ekki máli hversu há laun þú hefur. Þetta gildir eingöngu þá sem starfa
skemur en 6 mánuði í landinu og á þ.a.l. við um Nordjobbara sem dvelja
yfirleitt ekki lengur en fjóra mánuði. Þú þarft að fara á viðkomandi
skattstofu við komu og þar færðu bæði sænska kennitölu og skattkort.
Athugaðu að í Svíþjóð eru fyrstu laun greidd tveimur mánuðum eftir að hafin eru störf.