Tómstundirnar
Húsnæði
Flestir þátttakendur búa á stúdentagörðum en það er líka algengt að búið sé í leiguíbúðum.
Einnig eru stundum nýttir svonefndir tómstundagarðar, sem er lokað á sumrin. Það er einfalt að breyta þeim í þægilegt húsnæði fyrir 4-6 þátttakendur. Leiga fyrir stúdentagarða er milli 2.500 og 3.200 SEK. Annað húsnæði er yfirleitt aðeins ódýrara.
Þú þarft ekki að vera einmana í Nordjobb
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá á öllum stærri Nordjobbstöðum, um það bil einu sinni til tvisvar í viku. Hafðu í huga að engin tómstundadagskrá er í boði á minni stöðum þar sem fáir Nordjobbarar búa. Tómstundafulltrúi skipuleggur og sér um tómstundadagskrána og er einnig sá/sú sem þú munt leita mest til og hitta yfir sumarið. Á flestum Nordjobbstöðum
er einnig boðið upp á stutt tungumálanámskeið að kostnaðarlausu, sem hægt er að taka þátt í ef þörf er á að bæta málakunnáttuna.
Ferðalög á eigin kostnað
Dagskráin sem ætluð er þátttakendum er yfirleitt á þeirra kostnað, þótt Nordjobb greiði í sumum tilfellum niður hluta kostnaðar. Það er ekki skylda að taka þátt en borgar sig oftast! Það er bæði ódýrara og skemmtilegra að fara í ferðir í félagsskap Nordjobbara en að fara ein/n.
Tómstundadagskrá hvers lands verður birt á heimasíðunni þegar líða fer á vorið.
Verðdæmi
Strætisvagna-/lestar-/neðanjarðarlestarmiði innanbæjar; 15-30 SEK
Mánaðarkort innanbæjar; 500 SEK
1 kíló af banönum; 10-15 SEK
1 bíómiði; 80-90 SEK
1 flaska af bjór; 10-15 SEK
1 kíló af kartöflum; 6 SEK
1 lítri af mjólk; 8 SEK
1 brauð; 15-20 SEK