Umsóknartímabil fyrir 2010 er frá byrjun janúar til juní. SÆKTU UM NORDJOBB Senda/sendu inn umsókn sem fyrst
Umsóknartímabilið er frá janúar til maí. Það borgar sig að senda inn umsókn eins fljótt og auðið er. Því fyrr sem sótt er um, þeim mun meiri líkur eru á að fá Nordjobb. Lágmarkstími í Nordjobb er einn mánuður en mælt er með því að sækja um starf í lengri tíma.
Umsókn á netinu - hratt, auðvelt og sveigjanlegt
Aðeins er mögulegt að sækja um Nordjobb á heimasíðunni. Það er auðvelt og fljótlegt að fylla út umsóknina. Athugaðu að þú þarft að skrifa alla umsóknina á dönsku, norsku eða sænsku. Umsóknareyðublaðið er á sænsku en er væntanlegt á íslensku ásamt útskýringum sem fást fram með því að ýta á ? hnappa á eyðublaðinu. Ekki er nauðsynlegt að fylla út alla umsóknina í einu, það er mögulegt að halda áfram síðar. Þú getur á öllu umsóknartímabilinu skráð þig inn með netfangi og leyniorði og uppfært umsóknina eða jafnvel fjarlægt hana ef þú hættir við. Þegar hún er tilbúin, getum við strax hafist handa við að vinna með hana.
Hverjir geta sótt um Nordjobb? Nordjobb er ungmennaskiptaverkefni fyrir norræna ríkisborgara á aldrinum 18 til 28 ára (2010: fæddir 1.1.1982-1.7.1992, þú verður að vera orðin/n 18 ára í síðasta lagi 1. júlí). Það er mikilvægt að geta talað þokkalega dönsku, norsku eða sænsku. Það nægir kunna eitt þessara tungumála til að koma til greina í sumarstarf á öllum Norðurlöndum. Menntun eða starfsreynsla er ekki skilyrði hjá Nordjobb, en slíkt getur verið kostur. Af og til leita vinnuveitendur að fólki með ákveðna menntun eða starfsreynslu. Fylgstu vel með lausum störfum á Nordjobbsíðunni á tímabilinu.
Hvernig er ráðið í störf?
Það eru vinnuveitendurnir, sem ákveða hverjir fá Nordjobb. Mikilvægur hluti umsóknarinnar er persónulegt bréf til vinnuveitenda. Bréfið sýnir áhuga þinn og væntingar til sumarstarfsins.
Góð ráð þegar sótt er um
- Sæktu snemma um.
- Passaðu upp á að fylla inn í alla reiti á umsókninni.
- Veldu vinnutímabil sem nær yfir a.m.k. tvo mánuði.
- Veldu fleiri en eina atvinnugrein.
- Veldu ljósmynd sem líkist passamynd eða mynd þar sem aðeins andlitið sést vandaðu bréfið til vinnuveitenda: Skrifaðu fjölþætta kynningu á sjálfri/sjálfum þér, starfsreynslu þinni, menntun, áhugamálum og ástæðu þess að þú sækir um landið eða svæðið, sem þú valdir.
- Gerðu raunhæfa umsókn (miðaðu óskir þínar við aldur, tungumálakunnáttu, menntun og starfsreynslu).
- Hikaðu ekki við að hafa samband við Nordjobb í því landi sem þú hefur áhuga á (netföng og símanúmer má finna undir ,Hafðu samband” og því landi sem um ræðir) og spyrja um störfin, sem eru í boði, og hvernig umsóknir komi helst til greina þar.