Upplýsingar um Svíþjóð
Íbúar: 9.113.257 (2007)
Höfuðborg: Stokkhólmur 782.885 (2007)
Landlengja fjölbreyttrar náttúru
Merkja má aflanga lögun landsins á loftslaginu. Vetur í Suður-Svíþjóð eru talsvert mildari en í norðurhluta landsins. Meðalhiti í janúar er -1°C í suðri en -13°C í Norður-Svíþjóð. Munur á loftslagi eftir landshlutum í Svíþjóð endurspeglast einnig í gróðurfari. Í suðri má finna beyki- og eykiskóga. Í fjalllendinu vex dvergbjörk, einitré og víðir. Dæmigerð
dýr í barrskógabeltinu í norðri eru úlfar, gaupur, elgir, rádýr og hreindýr. Almennt eru algengustu spendýrin refur, íkorni og héri.
Í Svíþjóð er töluð sænska
Opinbert tungumál Svíþjóðar er sænska og er hún töluð í öllu landinu.
Sænska er germanskt mál, og telst einnig til norrænna mála. Samar, sem búa fyrst og fremst í Norður-Svíþjóð, tala líka samísku.
The Cardigans, Lína langsokkur og Gréta Garbo
Sænsk menning hefur lengi einkennst mest megnis af bókmenntum, en síðustu ár hefur tónlistin orðið veigameiri þáttur í menningarlífinu. Mangar popp- og rokkhljómsveitir hafa orðið heimsþekktar, til að mynda ABBA og The Cardigans.
Meðal þekktra nafna innan sænska bókmenntageirans má nefna August Strindberg og barnabókahöfundinn Astrid Lindgren.
Frægir rithöfundar í dag sem njóta vinsælda eru sakamálahöfundarnir Henning Mankell og Liza Marklund. Sænsk kvikmyndagerð
hefur alið af sér bæði leikstjóra og leikara. Heimsþekktasti leikstjórinn er Ingmar Bergman.
Frá veldi í Eystrarsalti til nútímalegs konungsríkis
Í Svíþjóð er konungsríki. Svíarnir hafa gegnum tíðina reynt að ná völdum í Eystrasalti og um tíma heyrðu Álandseyjar,
Finnland og Noregur undir Svíþjóð. Núverandi stjórnarform komst á árið 1905 þegar sambandið milli Svíþjóðar og Noregs leystist upp og Noregur varð sjálfstætt land. Í sænska þinginu, sem heitir Rikstag, sitja 349 fulltrúar sem kosnir eru fjórða hvert ár. Svíþjóð er meðlimur í Norðurlandaráði og tilheyrir einnig Sameinuðu þjóðunum og frá 1995 einnig Evrópusambandinu.
Svíþjóð er þróað iðnaðarríki. Yfir helmingur landsins er þakið skógi og stærsti hluti pappírs- og pappírsmassaverksmiðjanna er í norðri. Í Svíþjóð er einnig rík hefði fyrir véliðnaði og hátækni og framleiðir meðal annars bíla (Volvo, Saab), vopn (Bofors) og lyf (Astra) auk fyrirtækja sem sérhæfa sig í símasamskiptum (Ericsson).
Text: NIFIN, Nordjobb