nordjobb.net

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Start Leigusalar
bostad

Hefur þú húsnæði til leigu?

Nordjobb vantar alltaf húsnæði til leigu, sérstaklega í stórborgunum. Nordjobb útvegar öllum húsnæði sem fá sumarvinnu. Á ári hverju útvegum við húsnæði handa á milli 700 og 1000 ungmennum á aldrinum 18-28 ára.


Stærð, staðsetning og leiga

Við erum að leita eftir íbúðum eða herbergjum með aðgang að sturtu, klósetti og eldhúsi. Nálægð við almenningssamgöngur er sérstaklega mikilvægt í borgum. Við viljum bjóða þátttakendum okkar gott húsnæði á viðráðanlegu verði þar sem laun þeirra duga ekki fyrir háum leigukostnaði. Stór hluti húsnæðis er því stúdentaíbúðir. Það er einnig möguleiki að þátttakendur búi saman í stærri íbúð eða húsi. Íbúðirnar og herbergin þurfa að vera útbúin nauðsynlegustu húsgögnunum. Eldhúsáhöld, dýna og koddi eiga að vera til staðar.

Leigutími og samningur

Þátttakendurnir vinna í 1-4 mánuð yfir sumarið, frá maí til september. Oftast er gerður leigusamningur á milli leigutaka og leigusala, en einnig mögulegt að semja beint við Nordjobb þegar um er að ræða fleiri en eitt herbergi eða íbúðir. Yfir sumarið eru verkefnisstjórar eða tómstundafulltrúar Nordjobb á staðnum til að afhenta lykla, aðstoða við leigugreiðslur og til að koma þátttakanda fyrir í húsnæði sínu. Þeir geta líka svarað þeim spurningum sem upp geta komið. Hafðu samband við Nordjobb og fylltu út umsókn fyrir leiguhúsnæði ef þú átt hentugt húsnæði sem þig langar til að leigja reglusömum ungum einstaklingum frá Norðurlöndunum.

 

Leita

Veldu tungumál

Dansk (DK)Suomi (SF)Íslenska (IS)Svenska (SE)

Finndu okkur

facebook 48  twitter 48  rss 48