Nordjobb vinnur að því að auka samskipti á milli Norðurlandanna og að bæta þekkingu á norrænum tungumálum og menningu.
Nordjobb – Gáttin að Norðurlöndunum
Frá árinu 1985 hefur Nordjobb gefið ungu fólki á aldrinum 18-28 ára tækifæri til að upplifa Norðurlöndin með því að vinna, búa og taka þátt í menningaratburðum norræns lands yfir sumarmánuðina. Nordjobb veitir nordjobburum og atvinnuveitendum tækifæri til að viðhalda og styrkja sameiginlegan norrænan atvinnumarkað.

Hvernig er Nordjobb fjármagnað?
Nordjobb er að mestu leyti fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni, norrænum ráðuneytum, Norrænu félögunum, atvinnurekendum sem taka þátt og aðilum vinnumarkaðs hvers lands. Nordjobb hefur frá upphafsárinu 1985 veitt um 21 000 norrænum unglingum sumarvinnu. Yfirstjórn Nordjobb verkefnisins er á aðalskrifstofunni í Malmö.



Um Nordjobb




