nordjobb.net

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Start Umsækjendur Spurningar og svör

Spurningar og svör fyrir umsækjendur

  1. Get ég sótt um Nordjobb þótt ég sé ekki orðin/n 18 ára?
    Nei, aldurstakmark okkar er 18-28 ára. Þú verður að verða orðin/n 18 ára þegar sumarvinna þín hefst og mátt ekki verða 29 ára á starfstímabilinu.

  2. Mig langar að vinna og búa á sama stað og vinkona/vinur minn. Er það mögulegt?
    Við reynum að taka tillit til slíkra óska, en getum ekki lofað neinu. Það er atvinnurekandinn sem tekur lokaákvörðun um hvern hann ræður í vinnu og því getur verið að aðeins eitt ykkar fái vinnu eða að þið endið á mismunandi vinnustöðum.

  3. Ég bý ekki á Norðurlöndunum, get ég samt sótt um Nordjobb?
    Ef þú ert norrænn ríkisborgari eða hefur ríkisfang innan ESB þá geturðu sótt um Nordjobb. Ef þú ert ríkisborgari lands innan ESB gætirðu þurft að sækja um atvinnuleyfi áður en þú tekur tilboði frá Nordjobb. Við megum því miður ekki sækja um atvinnuleyfi fyrir þig.

  4. Á ég eftir að þéna mikið?
    Launin eru samkvæmt samningum og eiga að nægja vel fyrir leigu, mat, ferðum og vasapening. Við gerum okkar besta til að finna ódýrt húsnæði til að launin nýtist sem best.

  5. Hver greiðir ferðakostnað til og frá landsins þar sem ég vinn?
    Þú greiðir hann sjálf/ur. Það er gott að panta farmiða í tæka tíð til að ná góðu verði.

  6. Hvernig get ég aukið möguleika mína á að fá Nordjobb?
    A. Veldu fleiri en eitt land og starfsgreinar.
    B. Taktu fram að þú getir unnið í að minnsta kosti tvo mánuði.
    C. Skilaðu umsókn þinni eins fljótt og mögulegt er.
    D. Vertu viss um að umsókn þín sé fullgerð.

  7. Hvenær fæ ég að vita hvort ég hef fengið Nordjobb?
    Ef vinnuveitandi vill ráða þig hefur verkefnisstjóri Nordjobb samband við þig (í gegnum póst, tölvupóst eða síma) og býður þér starfið. Stundum hefur atvinnurekandinn sjálfur samband að fyrra bragði. Ef þú afþakkar starfið getum við því miður ekki boðið þér aðra stöðu, heldur verður umsókn þín fjarlægð úr hópi þeirra umsókna sem við vinnum með. Mögulegt er að fá tilboð um vinnu frá því í febrúar en flestir eru þó ráðnir í maímánuði. Ef ekki er mögulegt að útvega þér sumarstarf færðu um það skilaboð með tölvupósti um miðjan júní. Því miður getum við ekki látið vita fyrr þar sem leitin að störfum stendur yfir allt vorið og fram í júní. Á meðan það eru ennþá störf til ráðstöfunar er möguleiki á að fá Nordjobb!

  8. Verð ég að kunna íslensku á Íslandi, finnsku í Finnlandi og færeysku í Færeyjunum?
    Nei, það nægir að kunna dönsku, norsku eða sænsku. Það er líka hægt að bjarga sér á ensku, en að sjálfsögðu viljum við að þú notist við norðurlandamál.

  9. Hvað miðlið þið mörg störfum á ári?
    U.þ.b. 750 manns.

  10. Kostar eitthvað að sækja um vinnu í gegnum Nordjobb?
    Nei, það er ókeypis.

  11. Ég hef gleymt lykilorðinu. Hvað get ég gert?
    Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og óskaðu eftir nýju lykilorði. Vi björgum því um leið og tækifæri gefst.
  12. Ég hef útvegað mér vinnu sjálf/ur. Get ég samt tekið þátt í Nordjobb?
    Ef þú hefur útvegað þér vinnu og hefur samþykki vinnuveitandans máttu skrá þig sem nordjobbara. Ef þú hefur fengið vinnu á stað þar sem við höfum aðgang að húsnæði og skipuleggjum tömstundadagskrá geturðu notið þess. Hafðu samband við verkefnisstjórann í því landi sem þú hefur útvegað þér vinnu og við aðstoðum þig eftir megni. 

  13. Get ég átt von á að vinnuveitendur í fleiri en einu landi hafi samband við mig?
    Þegar verkefnisstjóri kynnir umsókn þina fyrir vinnuveitanda þá er hún bundin í því landi. Það þýðir að meðan umsóknin er í vinnslu er ekki hægt að kynna hana fyrir vinnuveitendum í öðrum löndum. 
 

Leita

Veldu tungumál

Dansk (DK)Suomi (SF)Íslenska (IS)Svenska (SE)

Finndu okkur

facebook 48  twitter 48  rss 48