Höfuðstöðvar Nordjobb á Álandseyjum eru í Mariehamn og þar er Jan-Erik verkefnisstjóri. Jan-Erik hefur langa reynslu af Nordjobb og getur aðstoðað þig við það sem þú þarft að vita. Yfir sumartímann starfar einnig tómstundafulltrúi sem aðstoðar við að svara spurningum og annað.
Að lifa og búa á Álandseyjum
Þegar þú hefur fengið vinnu gegnum Nordjobb útvegum við þér húsnæði, við skipuleggjum einnig tómstundadagskrá um sumarið og bjóðum upp á ferðir á vægu verði og veitum þér hvers kyns upplýsingar sem þú þarft á að halda meðan þú ert nordjobbari.
Húsnæði
Nordjobb hefur ekki greitt aðgengi að stúdentahúsnæði á Álandseyjum. Flestir þátttakendur Nordjobb deila því íbúð eða stærra húsnæði með öðrum. Stundum er jafnvel miðlað herbergjum í íbúðum fólks. Margir atvinnurekendur hafa húsnæði tiltækt handa þátttakendum sem búa oftast með öðrum. Margt af þessu húsnæði er miðsvæðis, en vegna skorts á húsnæði getur það einnig verið fyrir utan bæinn. Mánaðarleigan er um 350 evrur en hún er ódýrari fyrir utan bæinn. Í Mariehamn er frítt fyrir alla í strætó, en til að ferðast með rútu þarf að kaupa mánaðarkort. Oft er hægt að hjóla í húsnæði sem liggur fyrir utan Mariehamn og það ætti ekki að vera skotaskuld fyrir hressa nordjobbara.
Fjármál
Matur á Álandseyjum er aðeins dýrari en á meginlandi Finnlands. Það borgar sig að fjárfesta í mánaðarkorti í strætó ef þér er útvegað húsnæði fyrir utan bæinn. Ef þú býrð stutt frá vinnustaðnum er auðvelt að komast leiðir sinnar hjólandi. Ef þú ert frá Svíþjóð eða Finnlandi getur þú tekið bíl með þér, en bensín en ögn dýrari en í Svíþjóð.
Tómstundadagskrá
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá í helstu Nordjobb bæjunum einu sinni til tvisvar í viku. Það er ekki boðið upp á tómstundadagskrá í minni bæjum með fáum nordjobburum. Aðstoðarmenn verkefnisstjórans skipuleggja og framkvæma tómstundadagskrána, en þeir eru einnig nánustu tengiliðir þínir við Nordjobb yfir sumartímann. Tómstundadagkrá Álandseyja er birt á heimasíðu Nordjobb um vorið.
Ferðir á vægu verði
Allir þátttakendur mega taka þátt í ferðunum sem Nordjobb skipuleggur á vægu verði og í sumum tilvikum greiðir Nordjobb niður kostnaðinn. Það er ekki skylda að taka þátt í ferðum en það borgar sig! Að fara í leiðangra og ferðir er skemmtilegra og ódýrara með Nordjobb hópnum en að fara á eigin vegum.
Verðdæmi
- Mánaðarkort til Eckerö Berghamn:
78 € mánaðarkort + 5 € endurgjald,
10 ferðir 35.10 + 5 € endurgjald,
1 ferð 3,90 €
Verð fer eftir hvaðan og hvert þú ferð. Þú finnur meiri upplýsingar á Ålandstrafiken. - 1 flaska bjór; 1,29 €, kippa af bjór; 6,90 €
- 1 kíló nautahakk; 7,95 €
- 1 kíló bananar; 1,99 €
- 1 lítri mjólk; 1,13 €
- 6 rúllur klósettpappír; 2,19 €
Lestu meira um Álandseyjar á Wikipedia.








