Nordjobb í Danmörku útvegar störf aðallega í Kaupmannahöfn en einnig í borgum eins og Óðinsvé, Álaborg og Árhúsum, sem og vinsælum ferðamannastöðum á norður og vesturströnd Jótlands
Að lifa og búa í Danmörku
Þegar þú hefur fengið vinnu gegnum Nordjobb útvegum við þér húsnæði, við skipuleggjum einnig tómstundadagskrá um sumarið og bjóðum upp á ferðir á vægu verði og veitum þér hvers kyns upplýsingar sem þú þarft á að halda meðan þú ert nordjobbari.
Húsnæði
Þátttakendur í Nordjobb dvelja oftast í stúdentahúsnæði eða í íbúðum í endurleigu. Algeng mánaðsleiga fyrir stúdentahúsnæði er 2000 DKK. Mánaðarleiga á íbúð getur verið um 6000 DKK en þá býrðu með öðrum nordjobbara og skiptir með honum leigunni. Hafðu samband við Klaus-Elmo ef þú getur útvegað eigið húsnæði.
Að ferðast til og frá vinnu
Danmörk er flöt eins og pönnukaka og því er þægilegasti ferðamátinn að hjóla. Þú getur tekið með þitt eigið hjól eða leigt/keypt þér notað hjól í Danmörku og sparað þér þannig pening í almenningssamgöngur. Þú gætir einnig nýtt þér Kaupmannahafnar-fyrirbærið ”bycyklen”, en það eru hjól sem staðsett eru í miðborginni og þú getur notað. Þú borgar 20 DKK sem þú færð tilbaka þegar þú skilar hjólinu. Þá er einnig möguleiki að taka strætó eða lest.
Tómstundadagskrá
Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá í helstu Nordjobb bæjunum einu sinni til tvisvar í viku. Það er ekki boðið upp á tómstundadagskrá í minni bæjum með fáum nordjobburum. Aðstoðarmenn verkefnisstjórans skipuleggja og framkvæma tómstundadagskrána, en þeir eru einnig nánustu tengiliðir þínir við Nordjobb yfir sumartímann. Tómstundadagkrá Danmerkur er birt á heimasíðu Nordjobb um vorið.
Ferðir á vægu verði
Allir þátttakendur mega taka þátt í ferðunum sem Nordjobb skipuleggur á vægu verði og í sumum tilvikum greiðir Nordjobb niður kostnaðinn. Það er ekki skylda að taka þátt í ferðum en það borgar sig! Að fara í leiðangra og ferðir er skemmtilegra og ódýrara með Nordjobb hópnum en að fara á eigin vegum.
Verðdæmi
- 1 strætómiði, Kaupmannahöfn, 2 svæði; 17 DKK
- 1 mánaðarkort í strætó, Kaupmannahöfn, 2 svæði: 300 DKK
- 1 bíómiði; 50-100 DKK
- 1 kíló nautahakk; 60 DKK
- 1 flaska bjór; 3-5 DKK
Lestu meira um Danmörku á Wikipedia.
Ertu nú þegar komin/n með Nordjobb?








