nordjobb.net

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Finnland

Nordjobb í Finnlandi útvegar fyrst og fremst vinnu í Helsinki, en einnig í borgunum Turku, Tampere og í Österbotten.

helsinki

Að lifa og búa í Finnlandi

Þegar þú hefur fengið vinnu gegnum Nordjobb útvegum við þér húsnæði, við skipuleggjum einnig tómstundadagskrá um sumarið og bjóðum upp á ferðir á vægu verði og veitum þér hvers kyns upplýsingar sem þú þarft á að halda meðan þú ert nordjobbari.

Húsnæði

Í borgunum eru stúdentaíbúðir algengasta húsnæðið á meðan að í minni bæjum er oftast um að ræða leiguhúsnæði á almennum markaði. Mánaðarleiga húsnæðis sem Nordjobb útvegar er í mesta lagi 320 evrur. Í Helsinki er mánaðarleigan oftast ögn dýrari en á öðrum svæðum. Í Tampere, Vaasa og Turku er oftast hægt að ganga eða hjóla í vinnu á meðan að í Helsinki er notast við strætó, neðanjarðarlest eða sporvagn.

Tómstundadagskrá

Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá í Helsinki, Tampere, Turku og í Österbotten einu sinni til tvisvar í viku. Það er ekki boðið upp á atburði í minni bæjum með fáum nordjobburum. Tómstundafulltrúarnir skipuleggja og framkvæma dagskrána, en þeir eru einnig nánustu tengiliðir þínir yfir sumartímann. Á flestum stöðunum er einnig boðið upp á tungumálanámskeið þér að kostnaðarlausu ef þú vilt læra grundvallaratriðin í finnsku.

Ferðir á vægu verði

Í Finnlandi er boðið upp á öflug og fjölbreytta tómstundadagskrá. Stærstu atburðirnir hafa verið ferðir til St. Pétursborgar og stór jónsmessuhátíð í skerjargarðinum. Dagskráin er yfirleitt á lágmarkskostnaði fyrir þátttakendur og í sumum tilvikum greiðir Nordjobb niður kostnaðinn. Það er ekki skylda að taka þátt í ferðum en það borgar sig! Að fara í skoðunarferðir og leiðangra er skemmtilegra og ódýrara með Nordjobb hópnum. Tómstundadagskráin er birt á heimasíðu Nordjobb um vorið.

land-finland-2

Verðdæmi

  • stakur; 2 €, mánaðarkort; u.þ.b. 60 €
  • 1 bíómiði: virka daga; 10-12 €, helgi; 10 €
  • 1 kíló hakk; 5,40 €
  • 1 kíló kartöflur; 0,70 €
  • 1 kíló bananar; 2 €
  • 1 bjórflaska ; 1 €

Lestu meira um Finnland á Wikipedia.

 

Leita

Veldu tungumál

Dansk (DK)Suomi (SF)Íslenska (IS)Svenska (SE)

Finndu okkur

facebook 48  twitter 48  rss 48