Nordjobb í Færeyjum miðlar aðallega störfum í Þórshöfn.
Að lifa og búa í Færeyjum
Þegar þú hefur fengið vinnu gegnum Nordjobb útvegum við þér húsnæði, við skipuleggjum einnig tómstundadagskrá um sumarið og bjóðum upp á ferðir á vægu verði og veitum þér hvers kyns upplýsingar sem þú þarft á að halda meðan þú ert nordjobbari.
Húsnæði
Við reynum að útvega leiguhúsnæði í íbúðum eða einbýlishúsum. Mánaðarleigan er 1800-2500 DKK. Vegna skorts á húsnæði er leigan hærri í Þórshöfn en á öðrum stöðum í Færeyjum.
Fjármál
Færeyjar eru ekki ódýrasta staðurinn til að búa á Norðurlöndum, en heldur ekki sá dýrasti. Það er fjölbreytt úrval í matvörubúðunum og hægt er að velja ódýran kostinn. Færeyskar vörur eru dýrari og það gildir líka um fisk! Það er þó hægt að kaupa fisk beint af veiðimönnunum og þeir bjóða yfirleitt betra verð.
Tómstundadagskrá
Tómstundadagskrá Færeyja birtist á heimasíðu Nordjobb seint um vorið. Nordjobb reynir að bjóða upp á tungumálanámskeið en það er ekki alltaf mögulegt.
Ferðir á vægu verði
Allir þátttakendur mega taka þátt í ferðunum sem Nordjobb skipuleggur á vægu verði og í sumum tilvikum greiðir Nordjobb niður kostnaðinn. Það er ekki skylda að taka þátt í ferðum en það borgar sig! Að fara í leiðangra og ferðir er skemmtilegra og ódýrara með Nordjobb hópnum en að fara á eigin vegum.
Verðdæmi
- Strætó í Þórshöfn er ókeypis
- Það kostar aldrei meira en 100 DKK að ferðast til Þórshafnar frá landsbyggðinni (eyjan Mykines er undantekning)
- 1 bíómiði; 75 DKK
- 1 lítri mjólk; 10 DKK
- 1 brauð; 23 DKK
- 1 bjór á bar; 45 DKK
Lestu meira um Færeyjar á Wikipedia.








