Nordjobb á Grænlandi útvegar vinnu í Nuuk, Illulissat, Aasiaat, Uummannaq och Narsaq.
Að lifa og búa á Grænlandi
Að vera nordjobbari á Grænlandi krefst meira sjálfstæðis þátttakenda en á hinum Norðurlöndunum. Á Grænlandi er langt á milli staða og því eru ekki sömu möguleikar á að hóa saman allan hópinn í hvert sinn sem eitthvað er í gangi. Á þeim vinnustöðum sem við útvegum eru oftast 3 eða fleiri nordjobbarar og því þarftu ekki að vera ein/n.
Húsnæði
Nordjobbarar búa í stúdentahúsnæði eða heima hjá atvinnurekendunum. Það er aðeins mögulegt að búa í stúdentahúsnæði þar til í lok júlí þar sem grænlenskir skólar byrja snemma í ágúst. Leigusamningur er gerður á milli þín og fulltrúa skólans. Húsnæðin eru útbúin eldhúsi og baðherbergi með klósetti. Mánaðarleigan er u.þ.b. 850 DKK. Láttu okkur vita með fyrirvara hvenær þú ert væntanleg/ur svo að við getum gengið frá húsnæðinu þínu!
Laun
Laun eru venjulega greidd tvisvar í mánuði til ófaglærðra starfsmanna. Mundu að þú færð fyrstu útborgun eftir tveggja eða þriggja vikna vinnu þannig að hafðu meðferðis nægan pening fyrir fyrstu mánaðarleigunni og mat.
Verðdæmi
- 1 lítri mjólk; 6,95-8,50 DKK
- 1 kíló bananar; 25 DKK
- 1 bíómiði; 50-70 DKK
- 1 brauð; 11-17 DKK
Lestu meira um Grænland á Wikipedia.








