nordjobb.net

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Ísland

island2

Nordjobb útvegar störf um allt Ísland en helst í Reykjavík og í dreifbýlinu.

Að lifa og búa á Íslandi

Þegar þú hefur fengið vinnu gegnum Nordjobb útvegum við þér húsnæði, við skipuleggjum einnig tómstundadagskrá um sumarið og bjóðum upp á ferðir á vægu verði og veitum þér hvers kyns upplýsingar sem þú þarft á að halda meðan þú ert nordjobbari.

Húsnæði

Nordjobb hefur takmarkaðan aðgang að stúdentahúsnæði á Íslandi og því búa flestir þátttakendur hjá fjölskyldu eða deila húsnæði með öðrum. Í Reykjavík er húsnæði í flestum tilfellum miðsvæðis. Mánaðarleigan er 30000-40000 ISK. Ef þú vinnur á sveitabæ eða hóteli býrðu jafnframt þar. Maður ferðast með strætó á höfuðborgarsvæðinu þar sem þar eru engar lestir eða sporvagnar á Íslandi.

Fjármál

Matur er dýr á Íslandi. Grænmeti og ávextir eru mun dýrari en í Skandinavíu. Það er borðað meira af fiski og lambi en á hinum Norðurlöndunum, enda er það dýrindismatur. Sá sem ekki tekur með sér nægilegan pening til að lifa út fyrsta mánuðinn getur þurft að lifa á pasta og tómatsósu.

Tómstundadagskrá

Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá í helstu Nordjobb bæjunum einu sinni til tvisvar í viku. Það er ekki boðið upp á tómstundadagskrá í minni bæjum með fáum nordjobburum. Aðstoðarmenn verkefnisstjórans skipuleggja og framkvæma tómstundadagskrána, en þeir eru einnig nánustu tengiliðir þínir við Nordjobb yfir sumartímann. Í Reykjavík er einnig boðið upp á tungumálanámskeið þér að kostnaðarlausu. Tómstundadagkrá Íslands er birt á heimasíðu Nordjobb um vorið.

island

Ferðir á vægu verði

Allir þátttakendur mega taka þátt í ferðunum sem Nordjobb skipuleggur á vægu verði og í sumum tilvikum greiðir Nordjobb niður kostnaðinn. Það er ekki skylda að taka þátt í ferðum en það borgar sig! Að fara í leiðangra og ferðir er skemmtilegra og ódýrara með Nordjobb hópnum en að fara á eigin vegum.

Verðdæmi

  • 1 mánaðarkort í strætó; 5600 ISK
  • 2. vikna strætókort; 3500 ISK
  • 1 far í strætó (innanbæjar); 280 ISK
  • 1 kíló nautahakk; 900 ISK
  • 1 kíló bananar; 180 ISK
  • 1 flaska bjór; 105-790 ISK
  • 1 bíómiði; 900 ISK
  • 1 lítri mjólk; 80 ISK

Lestu meira um Ísland á Wikipedia.

Hefurðu fengið Nordjobb?

 
NordjobbISL

Leita

Veldu tungumál

Dansk (DK)Suomi (SF)Íslenska (IS)Svenska (SE)

Finndu okkur

facebook 48  twitter 48  rss 48