nordjobb.net

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Start Umsækjendur Lönd Svíþjóð

Svíþjóð

Nordjobb í Svíþjóð miðlar fyrst og fremst vinnu í Stokkhólmi og nágrenni og í Gautaborg.

gamlastan

Að lifa og búa í Svíþjóð

Þegar þú hefur fengið vinnu gegnum Nordjobb útvegum við þér húsnæði, við skipuleggjum einnig tómstundadagskrá um sumarið og bjóðum upp á ferðir á vægu verði og veitum þér hvers kyns upplýsingar sem þú þarft á að halda meðan þú ert nordjobbari.

Húsnæði

Algengast er að búa á stúdentagörðum en húsnæði er líka miðlað af almennum markaði. Einnig kemur fyrir að leigt sé húsnæði á tómstundagörðum. Þeir eru lokaðir yfir sumartímann og auðvelt er að breyta þeim í hentugt húsnæði fyrir 4 til 6 manns. Mánaðarleigan á stúdentagörðum er um 2500 til 3200 SEK. Leigan er borguð fyrirfram hvern mánuð og því þarf að muna að hafa meðferðis nægan pening. Nordjobbarar sem deila með sér húsnæði geta oftast komist undan með lægri leigu.

Tómstundadagskrá

Nordjobb skipuleggur tómstundadagskrá í helstu Nordjobb bæjunum einu sinni til tvisvar í viku. Það er ekki boðið upp á tómstundadagskrá í minni bæjum með fáum nordjobburum. Aðstoðarmenn verkefnisstjórans skipuleggja og framkvæma tómstundadagskrána, en þeir eru einnig nánustu tengiliðir þínir við Nordjobb yfir sumartímann. Í flestum Nordjobb bæjum er einnig boðið upp á tungumálanámskeið þér að kostnaðarlausu sem þú getur tekið þátt í ef þú þarft að hressa upp á tungumálahæfni þína.

Ferðir á vægu verði

Allir þátttakendur mega taka þátt í ferðunum sem Nordjobb skipuleggur á vægu verði og í sumum tilvikum greiðir Nordjobb niður kostnaðinn. Það er ekki skylda að taka þátt í ferðum en það borgar sig! Að fara í leiðangra og ferðir er skemmtilegra og ódýrara með Nordjobb hópnum en að fara á eigin vegum. Tómstundadagskráin í öllum löndunum birtist á heimasíðu Nordjobb um vorið.

Verðdæmi

  • 1 strætó/neðanjarðarlestarmiði innanbæjar (fyrir innan tollsvæðis) í Stokkhólmi: 26 SEK
  • 1 mánaðarkort innanbæjar: (20 ára og eldri) 620 SEK, (yngri en 20 ára) 370 SEK
  • svenskoe
  • 1 kíló bananar: 15-20 SEK
  • 1 bíómiði: 80-90 SEK
  • 1 lítri mjólk: 8 SEK
  • 1 flaska bjór: 10-15 SEK

    Lestu meira um Svíþjóð á Wikipedia.

     

     

     

    Leita

    Veldu tungumál

    Dansk (DK)Suomi (SF)Íslenska (IS)Svenska (SE)

    Finndu okkur

    facebook 48  twitter 48  rss 48