Þú mátt sækja um ef:
- þú ert norrænn ríkisborgari eða ríkisborgari í ESB landi
- þú ert á aldrinum 18-28 ára (2012: fædd/ur 1.1.1984-1.7.1994)
- þú hefur ágætt vald á sænsku, norsku eða dönsku
Hvað getur Nordjobb gert fyrir þig sem umsækjanda?
- boðið sumarvinnu í norrænu landi eða sjálfstjórnarhéraði
- miðlað húsnæði
- boðið upp á spennandi og áhugaverða tómstundadagskrá
Nordjobb gerir engar kröfur um fyrri starfsmenntun eða vinnureynslu en það gæti samt sem áður verið kostur við ráðningu. Nordjobb miðlar hefðbundinni sumarvinnu á öllum Norðurlöndunum. Þú færð lögbundin laun og greiðir skatt í því landi sem þú starfar. Nordjobb miðlar bæði húsnæði og vinnu. Þú greiðir sjálf/ur ferðakostnað og leigu. Atvinnurekandinn hefur lokaákvörðun um ráðningu.
Ath! Þú getur ekki fengið Nordjobb í því landi sem þú ert ríkisborgari með undantekningu fyrir sjálfstjórnarhéruðin. Finnar geta þannig unnið á Álandseyjum og Danir í þeirra sjálfstjórnarhéruðum og öfugt.
Myndir af vinnustöðum síðasta árs








