Norræna félagið á Íslandi leitar að starfsmanni til að sinna verkefninu Nordjobb. Nordjobb miðlar sumarvinnu, húsnæði og tómstundadagskrá á Norðurlöndunum til ungmenna á aldrinum 18-28 ára.
Starfsmaðurinn á að útvega og miðla störfum og húsnæði á Íslandi í sumar auk þess að skipuleggja og framkvæma tómstundadagkrá sumarsins. Í starfinu felst að kynna verkefnið fyrir íslenskum ungmennum.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Góð kunnátta í dönsku, norsku og/eða sænsku
Háskólapróf sem nýtist í starfi er æskilegt
Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
Leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum
Um er að ræða tímabundið starf frá 1. febrúar til 31 . ágúst 2012. Nánari upplýsingar veitir Stefán Vilbergsson, s. 5510165, netfang Den här e-postadressen är skyddad från spamrobotar. Du måste tillåta Javascript för att visa e-postadressen . Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2012.








